Hanna Birna: Markmiðið að efla þjónustu

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra.
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra. mbl.is/Eggert

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra segir að tilgangurinn með stærri rekstrareiningum sýslumannsembætta sé að auka og efla þjónustu ríkisins í héraði og skapa aukin tækifæri til þess að færa ný verkefni til sýslumanna.

Það sama gildi um umdæmi lögreglustjóra, þar sem markmiðið sé að auka samhæfingu og samstarf og standa vörð um grunnþjónustu lögreglunnar.

Eins og kunnugt er samþykkti Alþingi síðastliðið vor tvö frumvörp innanríkisráðherra um breytingar á lögum um umdæmaskipan lögreglustjóra og sýslumanna. Með lögunum er embættum sýslumanna fækkað úr 24 í níu og lögregluumdæmum úr fimmtán í níu.

Fram kemur á vefsíðu ráðuneytisins að frestur til að skila inn umsögnum og ábendingum vegna nýrra embætta sýslumanna og lögreglustjóra hafi verið framlengdur til 14. júlí.

Hanna Birna bendir á að allan þann tíma sem unnið hafi verið að þessu máli hafi ráðuneytið lagt áherslu á náið samráð við hluteigandi aðila, þ.e. embættin sjálf, sveitastjórnir, landshlutasamtök og fleiri. Það samráð hafi gefist vel og málið verið unnið í mikilli sátt.

„Á sama tíma og við gefum aðilum tækifæri til að koma með athugasemdir og ábendingar, stendur yfir ráðningarferli vegna sýslumanna og lögreglustjóra. Í framhaldi af því tekur verkefnisstjórn í hverjum landshluta til við að útfæra tillögur til ráðherra um staðsetningu, fyrirkomulag og framkvæmd.  Ég er sannfærð um að sú vinna mun takast jafn vel og skila jafn miklum árangri og sú sátt sem náðst hefur um þessar mikilvægu breytingar,“ segir hún.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert