Mesta mildi var að ekki fór verr er stór skemmtibátur fylltist af vatni á Þingvallavatni út frá Skálabrekku. Þrír voru um borð í bátnum en engan þeirra sakaði, að sögn Vilhelms Guðbjartssonar, sem varð vitni að óhappinu.
Hann segir að þremenningarnir, fullorðinn maður ásamt tveimur unglingspiltum, hafi allir verið í flotgöllum. Að sögn Vilhelms var það til fyrirmyndar hversu vel þeir voru búnir og gott veður var þegar óhappið varð. Fyrr í dag var hins vegar norðangarri á Þingvöllum.
Vilhelm segir að feðgar sem voru í bústað þar nærri hafi farið út á litlum bát og tekið þann stóra í tog og komu með hann á land klukkan 19:30.