Umferðarslys varð á gatnamótum Hafnafjarðarvegar og Vífilstaðavegar skömmu fyrir klukkan þrjú í nótt en þar skullu saman tvær fólksbifreiðir. Í annarri bifreiðinni, bifreið af minnstu gerð, voru þrjú ungmenni og er ökumaðurinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Fíkniefni fundust í bifreið ungmennanna. Ökumaður hinnar bifreiðarinnar var einn á ferð.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er ekki vitað hversu alvarleg meiðsl fólksins eru. Bæði ökutækin voru fjarlægð af vettvangi með dráttarbifreiðum.
Bætt við klukkan 6:23
Samkvæmt upplýsingum frá lækni á bráðamóttöku Landspítalans var fernt flutt á Landspítalnn eftir slysið í nótt en eitt þeirra hefur verið útskrifað. Ástand hinna þriggja er stöðugt en ekki er hægt að fá frekari upplýsingar um líðan þeirra að svo stöddu.