Hrina jarðskjálfta varð í Mýrdalsjökli fyrir hádegi, í um 20 mínútur frá klukkan 11. Stærsti skjálftinn var um 3,1 á stærð samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands, en nokkrir skjálftar mældust milli 2 og 3 stig. Í kjölfarið fylgdu hátt í 20 eftirskjálftar. Náið er fylgst með því hvort hlaup hefjist að nýju.
Martin Hensch, eldfjallajarðskjálftafræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir að upptök jarðskjálftanna liggi grunnt, aðeins um 1 km undir yfirborðinu og nærri jarðhitakötlum undir jökulhettunni. Því sé líklegt að skjálftarnir tengist aukinni jarðhitavirkni.
„Þeir eru grunnir og við sjáum engin merki um að hreyfing sé á bergkviku. Við fylgjumst mjög náið með þessu, því það er aukin hætta á að hlaup hefjist að nýju í kringum Kötlu. En eins og stendur sjáum við engan gosóróa, órói undir jökli myndi vera merki um frekari flóð, en við sjáum ekki að svo sé.“
Óvissustigi vegna vatnavaxta og hlaupa í Múlakvísl og Jökulsá á Sólheimasandi var aflétt í gær. Ferðamenn eru því aftur komnir upp að jöklinum, en að sögn Martins bárust engar tilkynningar um að skjálftarnir hefðu fundist.
„En yfirleitt er það þannig að svona atburðir í Kötlu finnast ekki, svo það kemur ekki á óvart. Við höfum séð svipaðar hrinur síðustu daga, að vísu ekki alveg upp að 3 að stærð, en við teljum að þetta tengist jarðhitakerfinu. Það voru nokkrir eftirskjálftar en nú er orðið nokkuð rólegt aftur og engin merki um annað jökulhlaup.“