Þrátt fyrir að ylströndin í Nauthólsvík sé líklega ekki fyrsti viðkomustaður landsmanna á rigningarsumrum hefur verið talsverð umferð fólks þar í sumar. Sjósundkappar, skátar og zumba-dansarar eru meðal þeirra sem láta sjá sig á svæðinu hvernig sem viðrar.