Á fundi bæjarráðs Árborgar, sem haldinn var í morgun, kom fram að heildarlaun Ástu Stefánsdóttur, framkvæmdastjóra sveitarfélagsins og bæjarfulltrúa, eru 1.600.000 kr. á mánuði. Fjallað var um ráðningarsamning hennar á fundinum. Dfs.is greinir frá þessu.
Ráðningarsamningurinn var borinn undir atkvæði og samþykktur með tveimur atkvæðum bæjarfulltrúa D-lista, gegn atkvæði bæjarfulltrúa S-lista.
Sjá ýtarlega frétt Dfs.is um málið.