Umferðarteppa hefur myndast vegna vegaframkvæmda við Vesturlandsveg og brúna sem leiðir að Suðurlandsvegi. Einhverjir bílar hafa brugðið á það ráð að keyra yfir eyjuna á milli akreinanna til þess að snúa við og komast úr teppunni.
Svo virðist sem framkvæmdirnar séu ekki merktar sérstaklega svo að ökumönnum er bent á að aka varlega.