Allar tegundir hvala sem lifa við Íslandsstrendur verður að finna á stærsta hvalasafni Evrópu sem áætlað er að verði opnað í Reykjavík um miðjan ágúst. Alls verða 23 hvalalíkön á safninu, en þau verða hýst í tæplega 2.000 fermetra sýningarhúsnæði við Fiskislóð.
Vinna við safnið er nú í fullum gangi og keppast starfsmenn við að setja hvalina saman, en þeir bárust til landsins í um tuttugu gámum.
Fésbókarsíða Whales of Iceland