Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Hvolsvelli ákveðið að lýsa yfir óvissustigi við Sólheimajökul. Er ástæðan sú, að aðstæður við sporð Sólheimajökuls hafa að undanförnu breyst hratt.
Í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra segir, að undanfarnar vikur hafi aðstæður við sporð Sólheimajökuls breyst hratt. Sporður jökulsins gangi nú fram í jökullón og jakar brotnað framan úr jökulsporðinum og fallið í lónið. Við það að jökullinn gangi fram í lónið lyftist sporður hans og nú síðustu daga hafi fremsti hluti sporðsins lyfst um 1,5 metra. Þá hafi heyrst brestir í jöklinum í dag.
Lokað verður fyrir umferð bíla niður á bílastæðið sem er næst jökullóninu. Ferðamönnum er bent á að fara ekki fram á flata hluta jökulsporðsins því ekki sé ljóst hvort hann geti brotnað framan af jöklinum í hluta eða heild. Ef stærri stykki brotni framan af jöklinum ryðji þau frá sér vatni og það geti valdið flóðbylgju á flatlendinu við jökullónið.
Óvissustigi verður, að sögn ríkislögreglustjóra, haldið að minnsta kosti fram í vikuna eða þar til sérfræðingar hafi metið aðstæður á vettvangi og afstaða verið tekin til niðurstaðna þeirra.