Svo virðist sem landsmenn muni njóta sólarinnar að einhverju leyti á morgun, ef marka má veðurspá dagsins. Á hádegi á morgun verður nokkuð hlýtt, 16 gráður, í höfuðborginni en skýjað að mestu. Gert er ráð fyrir hægri austlægri eða breytilegri átt, en norðaustan 5-13 m/s um landið norðanvert.
Skýjað að mestu, en rigning NA-til. Heldur hægari NA-til síðdegis, en norðaustan 5-10 m/s á Vestfjörðum. Allvíða dálítil rigning með köflum, en þurrt að kalla vestanlands. Svipað veður á morgun. Hiti 7 til 17 stig að deginum, hlýjast á Vesturlandi.
Á höfuðborgarsvæðinu er gert ráð fyrir austlægri átt, 3-5 m/s, að skýjað verði að mestu og hiti 8 til 15 stig. Líkur á smá-vætu á morgun, einkum seinnipartinn.
Á fimmtudag
Norðaustanátt, yfirleitt 5-10 m/s og rigning með köflum, einkum suðaustan- og síðan austanlands. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast suðvestantil.
Á föstudag og laugardag
Norðaustlæg átt með skúrum, en áfram þurrt og fremur hlýtt suðvestan- og vestanlands.
Á sunnudag
Norðanátt með rigningu norðan- og austanlands, en fremur milt.
Á mánudag
Norðlæg eða breytileg átt með vætu um mest allt land. Hiti breytist lítið.