Íbúar höfuðborgarsvæðisins, Suður og Suð-Vesturlands ættu að geta notið sólarinnar í dag. Í Reykjavík gæti hitinn farið upp í 16 stig um hádegi og hlýnar þegar líður á daginn. Bjart verður á höfuðborgarsvæðinu og hægur andvari. Kaldara verður á Akureyri og Egilstöðum, en þar verða um 10 stig og skýjað.
Veðurspá næsta sólarhringinn:
Norðan 5-10 m/s í dag, en 8-13 A-ast. Bjartviðri á S- og V-landi, en dálítil súld eða rigning NA- og A-lands og með NV-ströndinni. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast SV-til.
Á þriðjudag:
Norðan 5-10 m/s. Súld eða rigning með köflum NA-til, skýjað og þurrt að kalla NV-lands, en bjartviðri á S- og V-landi. Hiti 7 til 12 stig um landið N-vert, en 12 til 18 stig syðra.
Á miðvikudag:
Minnkandi norðanátt. Lítilsháttar væta NA-til framan af degi, stöku skúrir syðst, en bjartviðri annars staðar. Hiti frá 6 stigum á NA-landi, upp í 17 stig S-lands.
Á fimmtudag:
Fremur hæg vestlæg eða breytileg átt. Skýjað um landið vestanvert og smásúld með ströndinni, en bjart með köflum í öðrum landshlutum. Hiti 10 til 16 stig, hlýjast á A-landi.
Á föstudag:
Norðan 5-10 m/s með dálítilli rigningu um landið N-vert, en skúrir syðra. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast S-lands.
Á laugardag:
Útlit fyrir norðlæga átt. Bjartviðri S- og V-lands og milt yfir daginn, en dálítil væta á N- og A-landi og fremur kalt í veðri.
Á sunnudag:
Líkur á vestlægri átt með smásúld um landið V- og N-vert.