Stærsti hópur nýnema í sögu HR

Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, býður nemendur velkomna.
Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, býður nemendur velkomna.

Metfjöldi umsókna barst Háskólanum í Reykjavík í ár en ríflega 2.500 umsóknir bárust um skólavist fyrir haustið 2014. Þetta er 11,3% aukning frá því á árinu 2013, sem einnig var metár hvað varðar fjölda umsókna. 

Mest var aukningin í tölvunarfræðideild og viðskiptadeild, segir í tilkynningu frá HR. Þá jókst fjöldi umsókna í tæknifræði umtalsvert og fjöldi umsókna í Íslenska orkuháskólann í HR margfaldaðist á milli ára. Mikill fjöldi umsókna barst einnig um nám á þeim fjórum nýju þverfaglegu námsbrautum sem boðið verður upp á í fyrsta sinn í haust; viðskiptafræði með lögfræði sem aukagrein, lögfræði með viðskiptafræði sem aukagrein, viðskiptafræði með tölvunarfræði sem aukagrein og tölvunarfræði með viðskiptafræði sem aukagrein. Loks var áberandi mikil fjölgun umsókna um meistaranám við allar deildir Háskólans í Reykjavík. 

. HR útskrifar tvo af hverjum þremur sem ljúka tækninámi á háskólastigi á Íslandi, helming þeirra sem ljúka viðskiptanámi og þriðjung þeirra sem ljúka laganámi, segir í fréttatilkynningunni.

Í dag bauð dr. Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, nýja  nemendur velkomna og setti skólann fyrir skólaárið 2014-2015.

Nýnemar við HR.
Nýnemar við HR.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert