Meðan flugeldasýning menningarnætur stendur yfir, frá kl. 22:50 til 23:20 á laugardag, mun afmarkað svæði innan Reykjavíkurhafnar, umhverfis Faxagarð, verða lokað fyrir allri báta og skipaumferð að sögn Landhelgisgæslunnar.
Fram kemur á vef Gæslunnar, að eftirlitsbætur LHG verði á svæðinu með hlustvörslu á rás 16 og 12 ásamt bátum frá Landsbjörg.
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar mun einnig senda út tilkynningu til sjófarenda með reglulegu millibili í gegnum VHF.
Sjá má kort af svæðinu á vef Gæslunnar.