Flugfélagið Air Berlin felldi niður flug í gær til Íslands vegna hugsanlegs eldgoss í Bárðarbungu. Árni Sólonsson, eigandi Capital-Inn, segir að einn gesta sinna hafi þurft að seinka komu sinni til landsins vegna flugsins. Ljóst er því að jarðhræringar í Bárðarbungu eru farnar að hafa víðtæk áhrif.
„Þessi gestur hringdi í mig í gær og sagðist ekki komast vegna eldgossins. Ég sagði að það væri ekkert eldgos í gangi og hann varð mjög hissa,“ sagði Árni í samtali við mbl.is.
Ekkert eldgos er þó sjáanlegt í Bárðarbungu eins og gert var kunnugt um í frétt mbl.is en viðbúnaðarstig verður endurmetið í hádeginu.