Lögreglan á Selfossi leitar unglings sem kallaður er Siggi, Siddi eða Silli en vangaveltur eru um að hann hafi farið upp á þak bifreiðar aðfaranótt laugardags og fallið í götuna. Unglingurinn er sagður grannur og hávaxinn.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar. Þar segir að aðfaranótt laugardags hafi verið unnin skemmdarverk á blárri Toyota Yaris sem stóð við Hafnarberg í Þorlákshöfn á móts við hús númer 4 og 6. Líkur séu á því að gengið hafi verið á vélarhlíf og toppi bifreiðarinnar.
„Um klukkan 03:30 sást til nokkurra unglinga við bílinn og einn lá í götunni. Sá stóð upp og haltraði frá bifreiðinni. Vangaveltur eru um að hann hafi farið upp á þak bifreiðarinnar og fallið í götuna. Sá unglingur var sagður grannur og hávaxinn. Einhver úr hópnum, tveir eða þrír drengir og ein stúlka, kölluðu hann Sigga, Sidda eða Silla. Lögreglan biður viðkomandi og þá sem veitt geta upplýsingar um atvikið að hafa samband í síma 480-1010.“