Bilun hefur komið upp í stofnkerfi Mílu á Vestfjörðum, á svæðinu milli Reykóla og Patreksfjarðar. Sökum þessa er fjarskiptaþjónusta á Vestfjörðum að hluta úti. Undirbúningur viðgerðar stendur yfir.
Uppfært 13.32
„Vegna fréttar mbl.is vill Vodafone góðfúslega taka fram, að ekki hafa orðið neinar truflanir á fjarskiptaþjónustu Vodafone á svæðinu.
Af fyrirsögninni mætti draga þá ályktun að Vestfirðir væru fjarskiptasambandslausir, en sú er alls ekki raunin.“