Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur segir að stóri jarðskjálftinn sem varð í Bárðarbungu í fyrrinótt geti gefið vísbendingar um að stór tappi sé undir kvikuþrónni á svæðinu. Skjálftinn hafi verið á meira dýpi en kvikuþrær séu almennt undir eldfjöllum hér á landi.
Svíinn Göran Ekström rannsakaði tíu skjálfta sem urðu undir Bárðarbungu á árunum 1976-1996 og setti fram kenningu um slíkan tappa en skjálftarnir urðu á svipuðu dýpi og sá sem varð í fyrrinótt.
Þetta er nokkuð á skjön við útskýringar sérfræðinga sem hafa útskýrt skjálftann sem afleiðingu af kvikuflæði út úr kvikuþró undir öskjunni og inn í bergganginn.
mbl.is ræddi við Harald um stöðuna í Bárðarbungu en hann segir enn jafn erfitt að spá um mögulegt gos og áður.
Frétt mbl.is: Sá stærsti hingað til.