Reynir Traustason, ritstjóri DV, og fleiri hafa í fjölmiðlum rætt um að Þorsteinn Guðnason, einn eigenda DV, hyggi á fjandsamlega yfirtöku á félaginu. Þorsteinn segir ekkert vera fjær sanni. Hann hafi komið með fé inn í fyrirtækið til að forða því frá gjaldþroti, og orðið við hjálparbeiðnum ritstjórans. Þorsteinn sendi fjölmiðlum yfirlýsingu í kvöld.
Yfirlýsing Þorsteins í heild:
„Að undanförnu hafa stjórnendur DV haft uppi ásakanir í minn garð um ég að standi fyrir fjandsamlegri yfirtöku á blaðinu. Ekkert er fjær sanni. Á undanförnum tveimur árum hef ég ítrekað orðið við hjálparbeiðni Reynis Traustasonar, ritstjóra blaðsins, um að koma með fé inn í fyrirtækið DV ehf til að forða því frá gjaldþroti og greiða upp háar skuldir sem safnast höfðu saman í opinberum gjöldum. Hlaupa þessar upphæðir á mörgum tugum milljóna króna.
Hvernig sá sem ítrekað hefur komið fyrirtæki til bjargar, getur allt í einu orðið óvinurinn undir rúminu, er sjálfstætt rannsóknarefni. Aftur er eina skýringin, að Reynir hafi ekki gert sínum nánustu samstarfsmönnum rétta grein fyrir stöðu mála og sé nú í einhverri örvæntingu að reyna að skrifa söguna eftirá.
Staðreyndin er sú að félög í minni eigu hafa keypt hlutafé og lánað umtalsvert fjármagn til hlutafjárkaupa í DV á undanförnum mánuðum, aðallega fyrir orð Reynis Traustasonar. Hefur það verið gert í því skyni að treysta rekstur blaðsins, koma því í öruggt fjárhagslegt skjól og tryggja framtíð þess sem frjáls og óháðs fjölmiðils. Hefði ekki komið til þessara aðgerða, væri DV ekki gefið út í dag.
Ég hef tekið eftir því undanfarna daga, að ritstjórinn hefur áhyggjur af fjárhagslegum burðum mínum. Þær áhyggjur eru ástæðulausar og voru ekki til staðar hjá Reyni í þau ótal skipti sem hann hefur haft samband við mig eða viðskiptafélaga mína í því skyni að ná í meira fjármagn í formi lána eða hlutafjár.
Hugur minn hefur alls ekki staðið til þess að taka yfir rekstur DV. Ég hef ítrekað farið fram á það við ritstjóra DV, að hann greiði umræddar skuldir til baka og eignist þannig blaðið.
Svofellt skeyti sendi ég ritstjóranum hinn 13. febrúar 2014:
„Kæri Reynir,
Ég árétta enn eindreginn vilja Umgjarðar ehf. og Tryggva Geirs ehf., sem við höfum rætt ítrekað frá því snemma sl. haust, að selja hlutabréf okkar í DV ehf. og að þú greiðir skuld þína vegna hlutafjárkaupa Ólafstúns ehf. Í kjölfarið mun ég segja af mér sem stjórnarformaður og boða til hluthafafundar til að kjósa nýja stjórn. Þetta er hér með ítrekað enn einn ganginn og mér þætti vænt um að þú gengir í málið svo fljótt sem kostur er.
Á meðan mun ég gegna skyldu minni sem stjórnarformaður. Ein af ástæðum þess að ég vil selja, sem er þó ekki meginástæðan, er að samskipti stjórnarformanns og framkvæmdastjóra eru ekki sem skyldi. Sökin er beggja sem jafnan er þegar tveir deila, ég firri mig ekki ábyrgð í því. Ég tel að framkvæmdastjóri hafi marga kosti og hann hefur staðið sig vel við fjármálastjórnun við erfiðar aðstæður.
Framkvæmdastjóra skortir hins vegar nauðsynlega grundvallarþekkingu í viðskiptastjórnun, ofl., til að sinna þessu starfi að mínu viti. Eins og hefur komið áður fram í okkar samtölum vil ég stíga niður sem stjórnarformaður og gera ykkur kleift að halda áfram að byggja upp félagið, sem þið hafið haft forgöngu um, og gera það eftir ykkar höfði. Þið getið það með því að losa okkur við hlutabréfin.“
Svar barst frá ritstjóranum um hæl, sem hljóðaði svo:
„Sæll Þorsteinn.
Set málið strax í gang.
rt“
Síðan hefur ekkert gerst, utan að stjórn DV ehf hefur að undanförnu verið óstarfhæf þar sem hún endurspeglar engan veginn vægi hluthafa og vilja raunverulegra eigenda. Fyrstu raunverulegu viðbrögð Reynis Traustasonar og félaga við eðlilegum óskum þeirra sem komu félagi hans og DV til bjargar, er að bola undirrituðum úr sæti stjórnarformanns, neita að greiða skuldir og hafa uppi tilhæfulausar ásakanir varðandi síðuna eirikurjonsson.is um gjörning sem fyrir löngu hefur verið til lykta leiddur í stjórn og enginn ágreiningur var um.
Af öllu framansögðu getur hver sem er, mótað sér sína afstöðu til þess hvort ásakanir í minn garð um fjandsamlega yfirtöku eiga við rök að styðjast. Ég er aðeins að gæta minna hagsmuna og hef ekkert annað í hyggju en efla blaðið á komandi mánuðum og misserum.
Að gefnu tilefni skal tekið fram, að kaup Björns Leifssonar og Lauga ehf á litlum hlut í DV ehf eru ekki á mínum vegum. Ýmsir smærri hluthafar afréðu að selja honum sinn hlut í blaðinu og er það aðeins jákvætt merki þess að virkur markaður sé með hluti í þessu fyrirtæki eins og öðrum. Er hann boðinn velkominn í hluthafahópinn, en einstakir hluthafar móta vitaskuld ekki ritstjórnarstefnu fjölmiðla né hafa með mannaforráð að gera.
Þorsteinn Guðnason
stjórnarmaður og hluthafi í DV ehf.“