Ós Markarfljóts hefur í sumar færst allt að einn kílómetra frá austri til vesturs. Í vor höfðu bændur undir Vestur-Eyjafjöllum áhyggjur af stöðu mála og töldu hættu á að fljótið myndi brjóta niður land til austurs á víðfeðmum svæðum.
Á síðustu vikum hefur þessi þróun snúist við og nú fellur meginþungi fljótsins fast að varnargarði við fljótið vestanvert, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.
Varnargarðurinn að vestan er mannvirki sem reist var að tilstuðlan Siglingastofnunar árið 2012. Því var ætlað að færa útfall fljótsins fjær Landeyjahöfn, en sem kunnugt er hefur sandburður úr fljótinu ásamt öðru truflað ferjusiglingar í höfnina.