Gleggri upplýsingar um eldgosið í Holuhrauni norðan Vatnajökuls benda til þess að öskudreifing sé óveruleg.
Skilgreint hættusvæði vegna blindflugs hefur verið minnkað og nær nú upp í 5.000 feta hæð. Allir áætlunarflugvellir á Íslandi eru opnir, samkvæmt upplýsingum Isavia.