Lögmaður Færeyja, Kaj Leo Holm Johannesen, vill að samið verði um fríverslun á milli Íslands, Færeyja og Grænlands og þannig myndað eitt fríverslunarsvæði á milli landanna.
Þetta var haft eftir Johannesen í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins en lögmaðurinn er staddur hér á landi vegna ársþings Vestnorræna ráðsins sem löndin þrjú eiga aðild að. Fyrir er fríverslunarsamningur á milli Íslands og Færeyja sem verið hefur í gildi frá árinu 2006.
Vestnorræna ráðið hvatti stjórnvöld í löndunum þremur í byrjun ársins til þess að mynda eitt efnahagssvæði með gerð fríverslunarsamnings á milli þeirra.
Frétt mbl.is: Vilja stofna vestnorrænt efnahagssvæði