Bæjarráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar leggur dagsektir á fyrirtækið Ice Lagoon, annað tveggja fyrirtækja sem bjóða bátasiglingar á Jökulsárlóni, frá 1. september sl.
Fyrirtækið á að greiða 250 þúsund krónur fyrir hvern dag sem líður án þess að það fjarlægi alla lausamuni af svæðinu.
Harðar deilur hafa verið á milli landeigenda við Jökulsárlón og blandast fyrirtækin sem veita ferðafólki þjónustu inn í þær. Deilurnar eru meðal annars reknar fyrir dómstólum og úrskurðarnefndum, að því er fram kemur í umfjöllun um deilur þessar í Morgunblaðinu í dag.