Flogið yfir gossprungur

Vísindamenn flugu yfir gosstöðvarnar í morgun. Meðfylgjandi ljósmyndir, sem Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands birtir á facebooksíðu sinni, náðust af nýju gossprungunni í Holuhrauni. Á fyrstu myndinni má sjá eldri sprunguna í fjarlægð.

Nýja sprungan opnaðist í nótt suður af gosstöðvunum en hún er nær Dyngjujökli.

Vísindamannaráð fundaði um stöðuna í morgun.  Þar kom fram að um kl. 7 í morgun hefði borist tilkynning um að nýjar gossprungur hefðu opnast sunnan við núverandi sprungu frá fréttamanni RÚV sem flaug yfir svæði.

Farið var í eftirlitsflug kl. 8:30 með vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Háskóla Íslands. Athuganir úr vélinni hafa leitt eftirfarandi í ljós:

  • Tvær gossprungur hafa myndast suður af gosstöðinni í Holuhrauni, í sigdalnum um 2 km frá Dyngjujökli. 
  • Mun minni strókar eru frá nýju sprungunum, gufa og gas stígur til suðausturs.
  • Sigketillinn í Dyngjujökli virðist hafa dýpkað.
  • Engar breytingar er að sjá á Bárðarbungu.

Þá kemur fram í yfirliti frá Veðurstofu Íslands, að mkið brennisteinstvíildi hafi mælst í kringum gosstöðvarnar eins og í gær. Mælingar sýna smávægilega aukningu í leiðni í Jökulsá á Fjöllum.  

Dálítill órói sást á jarðskjálftamælum upp úr kl. 3 í nótt. Draga fór úr honum um 6 leytið í morgun.

Töluverð virkni er í nyrðri gossprungunni (sprunga 1)  og er hæðin á  gufustróknum ca. 15.000 fet.

Ekkert bendir til þess að gosið í Holuhrauni sé í rénun. Hraunið úr sprungu 1 rennur enn aðallega til  ANA og hefur lengst síðan í gær.

Skjálftavirkni á svæðinu er svipuð og í gær. Um 170 skjálftar hafa mælst frá miðnætti. Tveir jarðskjálftar 4,4 og 5,3 mældust við Bárðarbunguöskjuna um miðnætti.

Enn hefur hægst á jarðskorpuhreyfingum, mældum með GPS, og eru þær nú innan óvissumarka.

Fjórir möguleikar eru enn taldir líklegastir um framvindu: 

  • Að innflæði kviku stöðvist og skjálftahrinan fjari út og ekki komi til annars eldgoss.
  • Gangurinn nái til yfirborðs á fleiri stöðum utan jökuls. Ekki er hægt að útiloka gos með hraunflæði og/eða sprengivirkni.
  • Gangurinn nái til yfirborðs undir jökli. Gosið myndi leiða til jökulhlaups í Jökulsá á Fjöllum og e.t.v. einnig sprengigoss með öskufalli.
  • Gos í Bárðarbungu. Gosið gæti leitt til jökulhlaups og e.t.v. einnig sprengigoss með öskufalli. Mestar líkur eru á að hlaup kæmi niður Jökulsá á Fjöllum, en ekki er hægt að útiloka aðrar hlaupaleiðir: Skjálfandafljót, Kaldakvísl, Skaftárkatla og Grímsvötn.

 Ekki er hægt að útiloka aðrar sviðsmyndir.

Þá er litakóði fyrir flug appelsínugulur fyrir Bárðarbungu og gulur fyrir Öskju.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert