Ísland eykur framlög til NATO

Leiðtogar NATO-ríkjanna í Wales í dag. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra …
Leiðtogar NATO-ríkjanna í Wales í dag. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra stendur hægra megin við Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, og fyrir aftan Francois Hollande Frakklandsforseta á myndinni. AFP

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra tilkynnti á fundum aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins (NATO) í dag um þær fyrirætlanir íslenskra stjórnvalda að efla þátttöku sína og framlög í þágu eigin varna og NATO. Íslensk stjórnvöld ætla að fjölga borgaralegum sérfræðingum í störfum bandalagsins og auka fjárframlög í einstök verkefni þess, þ. á m. í Úkraínu.

Þá munu stjórnvöld auka stuðning við loftrýmisgæslu hér á landi, þ.m.t. við þyrlubjörgunarþjónustu, að því er segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Leiðtogafundi NATOí Wales lauk í dag, en Sigmundur Davíð og Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra sátu fundinn fyrir Íslands hönd. 

Fram kemur í tilkynningu, að á fundum aðildarríkja fyrr í dag, hafi leiðtogar aðildarríkjanna verið sammála um að snúa af braut lækkandi framlaga til varnarmála og samþykktu meðal annars sérstaka viðbragðsáætlun sem gerir ráð fyrir auknum viðbragðsflýti herafla og aukinni viðveru í austanverðri Evrópu.

„Í máli sínu lagði forsætisráðherra áherslu á mikilvægi Atlantshafstengslanna og sameiginlegra varna á tímum breytts öryggislandslags í austanverðri Evrópu. Minnti ráðherra einnig á norðurslóðir og mikilvægi þess að aðildarríki séu meðvituð um þróun mála þar. Þakkaði ráðherra þeim ríkjum sem sinnt hafa loftrýmisgæslu á Íslandi sem þjónaði þýðingarmiklu hlutverki í því tilliti. Einnig lagði ráðherra áherslu á gildi vefvarna og öryggis á hafinu, sem og framfylgd ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um konur, frið og öryggi. Þá lýsti forsætisráðherra yfir áhyggjum af uppgangi ISIL hryðjuverkasamtakanna í Írak og Sýrlandi.

Á fundi með forseta Úkraínu í NATO-Úkraínunefndinni, sem haldinn var í gær, áréttaði forsætisráðherra stuðning og samstöðu með stjórnvöldum í Úkraínu, og fordæmdi framferði Rússlandsstjórnar í landinu og ólögmæta innlimun Krímskaga. Hvatti ráðherra til þess að friðsamlegra leiða verði leitað til lausnar deilunni.

Á fundi með þátttökuríkjum alþjóðaaðgerðarinnar í Afganistan, sem einnig var haldinn í gær, áréttaði forsætisráðherra áframhaldandi stuðning íslenskra stjórnvalda við Afganistan eftir að núverandi aðgerð alþjóðaliðsins lýkur þar í árslok, en Afganistan er eitt af forgangsríkjum Íslands í þróunarsamvinnu. Sagði ráðherra mikilvægt að festa í sessi þann árangur sem náðst hefði, m.a. á sviði mannréttinda,“ segir í tilkynningunni.

Þá kemur fram, að leiðtogafundurinn í Wales hafi verið síðasti ráðherrafundur undir stjórn núverandi framkvæmdastjóra NATO, Anders Fogh Rasmussen, sem lætur af embætti í lok mánaðarins. Hinn 1. október nk. mun Jens Stoltenberg, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, hefja störf sem framkvæmdastjóri.

Á heimasíðu Atlantshafsbandalagsins, www.nato.int, má finna yfirlýsingar sem samþykktar voru á leiðtogafundinum.

Frá leiðtogafundinum í Wales í dag.
Frá leiðtogafundinum í Wales í dag. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert