Hallgrímskirkja og Perlan fá rautt nef

Perlan er nú böðuð rauðum ljóma
Perlan er nú böðuð rauðum ljóma mbl.is/Ómar Óskarsson

Útlitsbreytingar hafa orðið á tveimur helstu kennileitum Reykjavíkur, en feiknarstórt rautt nef hefur verið sett upp í turni Hallgrímskirkju og er Perlan nú böðuð rauðum ljóma. Ástæða útlitsbreytinganna á mannvirkjunum tveimur er Dagur rauða nefsins, átak UNICEF á Íslandi, sem haldinn verður föstudaginn 12. september næstkomandi.

Dagur rauða nefsins, sem nú er haldinn í sjötta sinn, er árleg landsöfnun UNICEF. Til­gang­ur hans er að nota grín og spé til að safna fé í þágu bág­staddra barna og bjóða fólki á Íslandi að gerast heimsforeldrar.

Emilía Sigurðardóttir, Hrefna Sigurðardóttir og Birta Rós Brynjólfsdóttir, nemendur í vöruhönnun í Listaháskóla Íslands, fengu það verkefni að vekja athygli á deginum. „Við ákváðum að reyna að finna eins margar leiðir og við gætum til að gera undarlegar uppákomur og vekja athygli á deginum,“ segir Emilía. „Rauðu nefin verða ekki seld í ár svo þá datt okkur það í hug að finna nef í borginni.“

Stöllurnar hafa jafnframt unnið verkefni í samstarfi við Krónuna til að vekja enn frekari athygli á átakinu. „Krónan verður með sérstakan bás með uppástungum af rauðum nefjum sem fólk getur búið sér til; rauð epli, tómata og jarðaber til dæmis.“ Þá styrkti Merking þær til að líma límmiða um borgina.

Allt unnið í sjálfboðavinnu

Þær Emilía, Hrefna og Birta hafa haft í mörgu að snúast í allt sumar til að gera verkefnið að veruleika. „Við erum búnar að vera að stússast endalaust til að fá réttu leyfin og tala við rétta fólkið til að fá þetta í gegn, og það hefur verið mjög skemmtilegt,“ segir Emilía. „Það er gaman að sjá hugmyndirnar sínar lifna við, sérstaklega fyrir gott málefni.“

Emilía segir marga aðila koma að verkefninu, sem allt er unnið í sjálfboðavinnu. „Við fengum gefins veðurblöðrur frá Veðurstofu íslands og fengum líka gefins rautt net frá Ísfell sem er netagerðarfyrirtæki. Við fórum með blöðruna upp í turn og blésum hana upp í gegnum miðjugluggann á Hallgrímskirkju,“ segir hún.

„Hvað varðar Perluna þá þurftum við að tala við framkvæmdastjórann og húsvörðinn og þeir ákváðu að leyfa okkur þetta og styrktu verkefnið okkar líka. Síðan er fyrirtæki sem heitir Exton sem sér um ljósin fyrir þá og þeir skáru út fyrir okkur skífurnar sem við þurftum til að gera þetta að veruleika. Við erum búnar að vera í allan dag og í gær að undirbúa og skrúfa upp öll ljósin í Perlunni og bora þau niður aftur,“ bætir hún við. „Þetta er líka mikið nám fyrir okkur. Við fáum að læra svo mikið á hlutina með því að vinna svona verkefni.“

Hvetja fólk til að vera hugmyndaríkt

Emilía segir verkefnið eiga að hvetja fólk til að vera hugmyndaríkt og leyfa sér að nota ímyndunaraflið. „Allir geta tekið þátt og gert eitthvað skemmtilegt með krökkunum sínum eða vinum og skorað á aðra til að gera það sama. Fólk getur skapað sitt eigið rauða nef og í leiðinni vakið athygli á Degi rauða nefsins og því að gerast heimsforeldrar hjá UNICEF.“

Með því að setja upp rautt nef lýsir fólk yfir stuðningi við réttindi barna á heimsvísu og deilir þeirri sannfæringu að öll börn eiga rétt á góðu, hamingjuríku lífi, hvar í heiminum sem þau kunna að hafa fæðst. Rauða nefið sjálft vísar til þess hvernig öll börn eiga rétt á að lifa hamingjuríku lífi, fullu af gleði og hlátri. Gleðin er þó stundum fjarlæg þegar aðstæður eru erfiðar og útlitið dökkt.

Átakið nær hámarki á föstudag

Dagur rauða nefsins nær hámarki á föstudag með metnaðarfullri skemmti- og söfnunardagskrá á RÚV strax að loknum kvöldfréttum. Þar kemur fjöldi fólks; leikarar, tónlistarfólk, uppistandarar og fleiri listamenn fram og gefa vinnu sína fyrir gott málefni. Í útsendingunni verða einnig sýnd innslög frá starfi UNICEF á Madagaskar, en þangað hélt leikarinn Ólafur Darri Ólafsson, sem einnig er heimsforeldri UNICEF, til að kynna sér starfið á vettvangi.

Hægt er að ganga í lið með heimsforeldrum UNICEF með því að skrá sig á heimasíðu UNICEF á Íslandi, www.unicef.is eða hringja í síma 562-6262.

Rauðnefjuð Hallgrímskirkja.
Rauðnefjuð Hallgrímskirkja. mbl.is/Ómar Óskarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert