Fylgjast þurfi með norðurslóðum

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra og Philip M. Breedlove, yfirhershöfðingi Atlantshafsbandalagsins …
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra og Philip M. Breedlove, yfirhershöfðingi Atlantshafsbandalagsins (NATO). Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra og Philip M. Breedlove, yfirhershöfðingi Atlantshafsbandalagsins (NATO), funduðu í dag í Ráðherrabústaðnum þar sem meðal annars var rætt um niðurstöður leiðtogafundar bandalagsins sem fram fór í Wales í síðustu viku og þátttöku Íslands á vettvangi þess. Þá var einnig rætt um reglubundna loftrýmisgæslu bandalagsins hér á landi, tækifæri til æfinga og rekstur íslenska loftvarnarkerfisins sem sé mikilvægur þáttur í framlagi Íslands til sameiginlegra varna bandalagsríkja. 

„Ég ítrekaði þá skoðun íslenskra stjórnvalda að Atlantshafsbandalagið þurfi að hafa á að skipa getu til að fylgjast með þróun mála á norðurslóðum. Breytingar á norðurslóðum fela í sér aukna umferð sem varðar ekki eingöngu öryggi og varnir heldur einnig umhverfisvá og leit og björgun. Að okkar mati er brýnt að huga einnig að þessum þætti samstarfsins innan bandalagsins“ segir Gunnar Bragi.

Utanríkisráðherra kynnti ennfremur þau skref sem íslensk stjórnvöld hafa í hyggju að taka í framhaldi leiðtogafundarins sem meðal annars felast í auknum gistiríkisstuðningi vegna loftrýmisgæslu, störfum borgaralegra sérfræðinga á vettvangi bandalagsins og áframhaldandi framlag til verkefna þess um konur, frið og öryggi. Þá var fjallað um áhrif átakanna í Úkraínu á öryggishorfur í Evrópu sem og um vefógnir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert