Losa farminn úr Akrafelli á morgun

Gert er ráð fyrir að losun farms hefjist á morgun …
Gert er ráð fyrir að losun farms hefjist á morgun laugardag. mbl.is/Jens G. Helgason

Akrafell, flutningaskip Samskipa sem strandaði við Vattarnes í liðinni viku, hefur verið bundið við bryggju á Eskifirði undanfarna daga þar sem unnið hefur verið við að þétta skipið og koma í veg fyrir frekara tjón og fyrirbyggja mengun. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

„Dæling úr skipinu gengur vel og tæknimenn vinna að því lágmarka tjón í vélarrúmi.
Áætlað er að flytja skipið að Mjóeyri við Reyðarfjörð þar sem farmurinn verður losaður. Gert er ráð fyrir að losun farms hefjist á morgun laugardag. Undirbúningur og framkvæmd á flutningi skipsins er unnin í samráði við hlutaðeigandi aðila.

Dráttarbátur frá Höfn í Hornafirði, Björn Lóðs og Björgunarskipið Vöttur munu aðstoða við flutning á Akrafellinu frá Eskifirði til Reyðarfjarðar,“ segir ennfremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert