Skora á Landsbankann að hætta við

Á myndinni sem fylgir afhendir Ólafur Þór Ólafsson forseti bæjarstjórnar …
Á myndinni sem fylgir afhendir Ólafur Þór Ólafsson forseti bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar Steinþóri Pálssyni bankastjóra Landsbankans áskorun um að endurskoða tafarlaust ákvörðun um lokun og falla frá þeim áætlunum.

Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar harmar ákvörðun Landsbankans um lokun útibús bankans í Sandgerði. Á fundi bæjaryfirvalda með Steinþóri Pálssyni bankastjóra fyrr í dag var skorað á hann og bankaráð Landsbankans að endurskoða tafarlaust ákvörðun um lokun og falla frá þeim áætlunum.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Sandgerðisbæ.

Þar segir, að Landsbankinn eigi að hafa burði til að starfrækja bankaútibú í rúmlega 1.600 manna samfélagi og bjóða bæði íbúum og fyrirtækjum þjónustu í nærsamfélaginu. Þannig stæði banki í ríkiseigu undir samfélagslegum skyldum og ábyrgð.

Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar segir ennfremur, að hún muni gera það sem í hennar valdi standi til að reyna að tryggja Sandgerðingum bankaþjónustu í heimabyggð.

18 sagt upp hjá Landsbankanum

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert