Myndavélar í Strætó

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Öryggismyndavélar verða teknar í gagnið í nýrri vögnum Strætó bs. í byrjun næsta mánaðar.

Til að byrja með verða vélarnar í 15-18 vögnum en um áramót eiga þeir að vera orðnir um fjörutíu. Stefnt er að því að allir vagnar Strætó verði útbúnir öryggismyndavélum í framtíðinni.

Vagnarnir með myndavélunum verða auðkenndir sérstaklega með límmiðum á þremur stöðum á þeim. Myndavélarnar geta aðeins tekið upp myndefni en ekki hljóð. Upptökurnar eru geymdar í þrjátíu daga og ekki verður hægt að fylgjast með þeim í rauntíma.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert