Söngvarinn ástsæli, Ragnar Bjarnason, eða Raggi Bjarna, fagnaði 80 ára afmæli sínu í Eldborgarsal Hörpu í dag.
Hann lék á als oddi í góðra vina hópi, en Álftagerðisbræður, Guðrún Gunnarsdóttir, Jón Jónsson, Lay Low, Karlakór Reykjavíkur, Páll Óskar Hjálmtýsson, Ómar Ragnarsson og fleiri stigu á stokk í tilefni af afmælinu.