Vegagerðin vill vekja athygli vegfarenda sem eiga leið um Öxnadalsheiði í kvöld eða nótt að hæglega geti komið þar snjóföl með hálku. Spáð er vestan hvassvirði með krappri lægð sem fer hratt austur yfir Suðurland í kvöld og nótt.
Reikna má með hviðum 30-35 m/s undir Eyjafjöllum og í Mýrdal frá því seint í kvöld og fram á miðja nótt.