Aðeins forstjórinn vill flytja norður

Fiskistofa er nú til húsa að Dalshrauni 1 í Hafnarfirði.
Fiskistofa er nú til húsa að Dalshrauni 1 í Hafnarfirði. mbl.is/Árni Sæberg

Starfsfólk Fiskistofu mótmælir harðlega ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um
flutning höfuðstöðva stofnunarinnar til Akureyrar og þeim löglausu fyrirætlunum sem kynntar voru í bréfi ráðherra til starfsmanna dagsettu þann 10. september.

Þetta kemur fram í ályktun fundar starfsfólks Fiskistofu.

Í ályktuninni kemur fram að ljóst er að ákvörðun ráðherrans styðst ekki við lagaheimild og er til þess fallin að skaða starfsemi stofnunarinnar, „enda hafa engir starfsmenn, utan fiskistofustjóra, lýst áhuga á að flytjast með henni norður“.

Hvetur starfsfólk Fiskistofu ráðherra til þess að falla þegar í stað frá hugmyndum um flutning stofnunarinnar, sem virðist afar misráðinn og undirbúningi áfátt.

Þá er mótmælt áformum þar sem starfsmenn sem ekki hyggjast fylgja störfum sínum norður
„yrðu þvingaðir til þess að segja sjálfir upp störfum, enda gætu þeir átt á hættu að glata þeim
réttindum, sem þeir ella hefðu, ef slit á ráðningarsambandi væri á ábyrgð vinnuveitanda.
Vinnubrögð af þessu tagi ættu ekki að tíðkast í siðuðu samfélagi.“

Þá segir í ályktuninni:

„Undanfarna daga hefur ráðherra ítrekað látið í veðri vaka í viðtölum við fjölmiðla að unnið
sé að verkefninu í samráði við starfsmenn stofnunarinnar. Starfsfólk Fiskistofu vísar þessu alfarið á bug. Skal áréttað að fulltrúum starfsmanna var ekki boðið að taka þátt í gerð tillagna sem starfsmenn ráðuneytisins ásamt fiskistofustjóra unnu að og lagðar voru fyrir ráðherra í ágústlok. Var ráðherra þá gerð skýr grein fyrir því að starfmenn ættu enga aðild að tillögunum. Virðist hann því tala gegn betri vitund.

Í sumar kom fram að ráðherra mæti það svo að flutningur Fiskistofu gæti kostað 100-200
milljónir króna. Nú liggur hins vegar fyrir gróf áætlun fiskistofustjóra þar sem gert er ráð fyrir því að kostnaður við flutninginn geti verið 200-300 milljónir króna, eða tvöfalt hærri en áður hafði verið nefnt og eru sjálfsagt ekki öll kurl til grafar komin í þeim efnum. Vilja starfsmenn vekja athygli á þessu og hvetja ráðamenn til að huga vandlega að því hvernig fjármunum almennings er varið. Vekur athygli að ekki virðist vera gert ráð fyrir þessum kostnaði í þeim drögum að fjárlögum sem fyrir liggja.

Starfsfólk Fiskistofu harmar dapurlega tilburði stjórnmálamanna sem reynt hafa að notfæra
sér flutning Fiskistofu til þess að etja saman landsbyggðinni annars vegar og höfuðborgarsvæðinu hins vegar. Engu skiptir hver á í hlut þegar með valdboði er reynt að flytja fólk nauðugt viljugt landshornanna á milli. Málflutningur á þessum nótum er óboðlegur og engum til framdráttar.

Ráðuneytið hefur upplýst starfsfólk Fiskistofu um að í forsætisráðuneytinu sé unnið að
frumvarpi þar sem gert er ráð fyrir lagabreytingum sem munu auðvelda valdhöfum að taka
ákvarðanir um staðsetningu starfa og stofnana að eigin geðþótta án þess að afla þurfi sérstakrar lagaheimildar hverju sinni. Lýtur þetta að starfsöryggi og réttindum allra opinberra starfsmanna ekki síst í ljósi þeirra ummæla forsætisráðherra frá því í sumar þar sem fram kom að fyrir dyrum stæði flutningur fleiri opinberra stofnana. Starfsfólk Fiskistofu skorar á Alþingismenn að standa vörð um löggjafarvaldið. Það stuðli að lýðræðislegum vinnubrögðum stjórnvalda og standi gegn því að slíkar hugmyndir séu færðar í lög. Starfsfólk annarra opinberra stofnana er jafnframt hvatt til þess að vera á varðbergi og fylgjast grannt með þessari framvindu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert