Veðurstofa Íslands segir að í dag megi búast við gasmengun einkum vestur af eldstöðinni í Holuhrauni. Nær mengunarsvæðið um það bil frá Húsavík að Blönduósi, á hálendinu og á Suðurlandi.
Búist er við lægðagangi yfir landið um helgina með tilheyrandi breytingum í vindátt. Spáin verður þá flókin og getur verið erfitt að henda reiður á því hvar mengunin er og hvert hún stefnir að sögn Veðurstofunnar.
Tekið er fram, að það jákvæða sé að sífelldir snúningar í vindátt ættu að þýða að gasið staldri ekki lengi við á hverjum stað.
Eftir helgi er síðan búist við suðaustan- og sunnanátt verði ríkjandi og er útlit fyrir hvassan vind með köflum.
Spáin er svohljóðandi:
Laugardagur: Suðaustlæg eða breytileg átt. Búast má við gasmengun einkum vestur af eldstöðinni. Mengunarsvæðið nær u.þ.b. frá Húsavík að Blönduósi, á hálendinu suður á
Suðurland.
Sunnudagur: Vestlæg átt. Búast má við gasmengun á Austurlandi.
Nánari upplýsingar á vef Veðurstofu Íslands