Smátt og smátt lengjast Norðfjarðargöng sem eiga að verða tilbúin árið 2017.
Búið er að sprengja um 45% leiðarinnar. Alls verða göngin 4.566 metra löng.
„Jarðgöngin munu breyta miklu fyrir Neskaupstað og auka öryggi vegfarenda,“ segir Níels Atli Hjálmarsson, lögreglumaður í Neskaupstað í umfjöllun um gangnagerðina í Morgunblaðinu í dag.