Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar sem nú stendur yfir var samþykkt að skora á sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Sigurð Inga Jóhannsson og ríkisstjórnina, að draga til baka ákvörðun sína um að flytja Fiskistofu frá Hafnarfirði til Akureyrar þar sem engin málefnaleg rök fyrir flutningnum hafa komið fram.
Bæjarráð Hafnarfjarðar mótmælti 1. júlí þeim áformum ráðherra að flytja starfsemi Fiskistofu úr Hafnarfirði. Þegar ákvörðun um flutning opinberra stofnana, og þá starfa á milli landshluta, er tekin verður að gera þá kröfu að fyrir liggi málefnaleg rök. Svo er ekki um að ræða í þessu tilviki.
Þau byggðasjónarmið sem vísað hefur verið til af hálfu ráðherra standast ekki skoðun samkvæmt upplýsingum sem bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar hafa aflað sér.
Samkvæmt tölulegum upplýsingum er Akureyri ekki í vörn hvað íbúafjölgun varðar, miðað við landsmeðaltal, og aðrar tölulegar upplýsingar gefa ekki sérstaklega til kynna að bæjarfélagið þurfi sérstakan stuðning ríkisins í þessum efnum, segir í frétt frá Hafnarfjarðarbæ.
Frekari samantekt og upplýsingar eru á www.hafnarfjordur.is