Tollurinn þurfti að stöðva á milli 70 og 80 sendingar frá Kína á tveggja mánaða tímabili í sumar vegna þess að CE merkingar vantaði. Einkum var um að ræða síma og spjaldtölvur.
„Tollstjóri vill af gefnu tilefni minna á að rafmagnstæki sem keypt eru erlendis eða pöntuð á netinu þurfa að bera CE merkingu til að flytja megi þau til landsins samkvæmt gildandi tilskipunum á evrópska efnahagssvæðinu. (EES),“ segir í tilkynningu.
Á Íslandi gilda sömu reglur um CE-merkingar og í öðrum EES-ríkjum þar sem landið er aðili að EES-samningnum.
Vöruflokkar sem heyra undir umræddar tilskipanir EES, auk rafmagnstækja, eru til dæmis leikföng, vélar, persónuhlífar og notendabúnaður fjarskiptakerfa og síma
CE-merking er skilyrði fyrir markaðssetningu tiltekinna vara á Evrópska efnahagssvæðinu. Merkið er auðkennismerking sem gefur til kynna að framleiðandi, innflytjandi eða dreifingaraðili vöru ábyrgist að hún uppfylli þær grunnkröfur um öryggi og almennt heilbrigði sem tilskipanir Evrópusambandsins kveða á um.