Ekki hringja til baka

Nokkuð hefur borið á því að fólk hafi fengið sms með skilaboðunum „Hringdu í mig vinsamlegast“ í dag og í kvöld. Skilaboðin eru með landsnúmeri Gíneu Bissá, 245, og á Facebook síðu sinni varar lögregla almenning við að hringja til baka.

„Hér eru á ferðinni skilaboð ætluð til þess að blekkja fólk, hugsanlega í þeim tilgangi að fá það til að hringja í númerið í uppsprengdum gjaldflokki. Vinsamlegast hundsið þessi SMS skilaboð og hringið alls ekki í þetta númer,“ segir í tilkynningu lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert