Flutningabíll fauk út af veginum í Hörgárdal í gærkvöldi með þeim afleiðingum að sláturúrgangur sem var í bílnum tvístraðist um allt.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri var mjög hvasst á þessum slóðum í gærkvöldi og verður ekki hægt að hreinsa upp úrganginn fyrr en birtir í dag.
Ökumaðurinn slasaðist lítillega og var fluttur á slysadeild Sjúkrahússins á Akureyri til skoðunar.