12 barnavagnar við Kaffihús Vesturbæjar

12 barnavagnar stóðu fyrir utan Kaffihús vesturbæjar í gærmorgun.
12 barnavagnar stóðu fyrir utan Kaffihús vesturbæjar í gærmorgun. Ljósmynd/Hörður Sveinsson

Opnun Kaffihúss Vesturbæjar hefur ekki beint farið leynt, en mikil eftirvænting hefur verið í aðdraganda opnunarinnar. Kaffihúsið var opnað í byrjun vikunnar og eins og sjá má nýtur það nú þegar mikilla vinsælda.

Hörður Sveinsson ljósmyndari var á kaffihúsinu í gær og taldi 12 barnavagna þar fyrir utan. „Það voru ekki svona margir vagnar þegar ég sat þarna inni, en kaffihúsið var troðfullt. Svo þegar ég var að fara hitti ég vin minn fyrir utan og talaði við hann í 20 mínútur. Á meðan komu nánast allir þessi barnavagnar.“

Hörður býr skammt frá Kaffihúsi Vesturbæjar og segir það kærkomna viðbót við Vesturbæinn. „Þetta er alveg frábært. Ég hef farið þangað daglega að fá mér kaffi.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert