Ellefu óku of hratt á Borgarholtsbraut

Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 36 ökutæki þessa akstursleið …
Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 36 ökutæki þessa akstursleið því ók hátt í þriðjungur ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. mbl.is/Árni Sæberg

Brot ellefu ökumanna voru mynduð á Borgarholtsbraut í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Borgarholtsbraut í vesturátt, á móts við Borgarholtsbraut 52.

Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 36 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í þriðjungur ökumanna, eða 31%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Borgarholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert