Gasmengun frá eldgosinu í Holuhrauni sem er yfir landinu fer væntanlega að berast til vesturs eftir hádegi í dag og gætu loftgæði orðið lítil. Þetta kemur fram í spá Veðurstofu Íslands fyrir loftgæði dagsins í dag.
Á mánudag og þriðjudag var vindur mjög hægur á landinu. Vart varð við gasmengun frá eldgosinu nokkuð víða á landinu. Í hægviðrinu er mögulegt að gasið safnist saman, þá einkum nærri eldstöðinni og nái háum styrk.
Í dag (miðvikudag) er hægt vaxandi austanátt. Það má gera ráð fyrir að eftir hádegi verði sú gasmengun sem er yfir landinu farin að berast til vesturs, ásamt því gasi sem kemur frá gosstöðvunum í dag. Austanvert landið ætti þá að vera að mestu laust við mengun þegar kemur fram á daginn. Víða annars staðar má búast við mengun og gætu loftgæði orðið lítil.
Á morgun (fimmtudag) er búist við ákveðnari austlægri átt og ætti að ná að blása því gasi burt sem setið hefur yfir landinu. Gasið sem berst frá eldgosinu berst til vesturs og norðvesturs og líklega mun verða vart við það í Skagafirði, við Húnaflóða, á Vestfjörðum, við Breiðafjörð og suður á Faxaflóa.
Hér er hægt að skoða spá Belgings
Veðurspá fyrir næsta sólarhring:
Austan 3-8 m/s í dag, en 8-13 syðst. Skýjað að mestu á A-helmingi landsins og sums staðar dálítil úrkoma, en þurrt og bjart með köflum V-til. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig yfir daginn, en allvíða frost að næturlagi.