Brot tuttugu og tveggja ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í austurátt, að Bláfjallavegi.
Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 297 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 101 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 109.
Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.