„Það dregur úr þessu hægt og rólega þar til þetta hættir einn góðan veðurdag. Það er þó ómögulegt að segja til um hvaða dag það verður,“ segir Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur um stöðu mála við Bárðarbungu.
Enn er mikil skjálftavirkni og sig í Bárðarbungu. Jarðskjálftarnir koma í hrinum sem enda oft með stórum skjálfta. Rúmlega 50 skjálftar hafa mælst þar frá miðnætti og var sá stærsti 4,9 að stærð kl. 11:09. Í gær mældist stór skjálfti af stærð 5,3 stig við norðanverða brún Bárðarbunguöskjunnar.
„Þetta er svona jafnt og þétt. Það dregur úr þessu hægt og rólega en það er heilmikið gos ennþá,“ segir Ármann. Hann segir breytingar á milli daga ekki vera miklar. „Það hefur dregið mikið úr gosinu frá því í byrjum og það dvínar hægt og rólega. En það er enginn svakalegur dagamunur.“ Þá segir hann hraunrennslið hafa minnkað mikið.
Nokkuð hefur dregið úr virkni eldgossins í Holuhrauni, en gasmengun er helsta vandamálið sem gosið skapar í dag.