33% stuðningur við ríkisstjórnina

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins.
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Ómar

MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina, stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, á tímabilinu 29. október til 4. nóvember 2014. Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 33,0% en mældist 34,3% í síðustu mælingu sem lauk þann 21. október og 34,0% í lok september.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 23,6%, borið saman við 26,1% í síðustu könnun og 25,2% í lok september. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 18,6%, borið saman við 20,0% í síðustu könnun og 18,8% í lok ágúst.

Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 16,1%, borið saman við 15,1% í síðustu könnun og 15,2% í lok ágúst. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 12,3%, borið saman við 10,1% í síðustu könnun. Fylgi Pírata mældist nú 11,3%, borið saman við 12,2% í síðustu könnun og mældist fylgi Vinstri-grænna nú 10,7%, borið saman við 10,0% í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist undir 2%.

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“.

Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði „einhvern hinna“ í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 77,0% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (6,5%), myndu skila auðu (7,8%), myndu ekki kjósa (2,5%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (6,2%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu könnun þar á undan.

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 976 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 29. október til 4. nóvember 2014

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert