Minningarathöfn um þá sem látist hafa í umferðarslysum verður haldin við þyrlupall Landspítalans í Fossvogi kl. 11 í dag. Þyrla Landhelgisgæslunnar lendir við spítalann kl. 10:45. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, flytur ávarp.
Aðstandendur og aðrir sem minnast vilja þeirra sem hafa látist í umferðarslysum eru velkomnir á minningarstundina.