Tuttugu og sjö aðgerðum hefur verið frestað á Landspítalanum í dag en verkfallsaðgerðir lækna á rannsóknar-, kvenna- og barnasviði spítalans hófust á miðnætti í nótt og standa yfir til miðnættis annað kvöld.
Þá hefur 200 rannsóknum verið frestað, auk þess sem aðeins 130 úrlestrum úr rannsóknum var skilað í dag, en á venjulegum degi eru þeir um 400. Fjöldi dag- og göngudeildarkoma hefur jafnframt verið frestað.
Mikið álag hefur verið á bráðamóttökudeild spítalans og ljóst er að verkfallið hefur mikil áhrif. Líkt og í síðustu lotu er allri bráð þó sinnt, og öryggi sjúklinga tryggt.
Ólafi Baldurssyni, framkvæmdastjóra lækninga á Landspítalanum, líst þunglega á áhrif verkfallsaðgerðanna á starfsemi spítalans í vikunni. „Þó við séum afar bjartsýnt fólk að eðlisfari þá er þetta mjög þungt,“ segir hann. „Það stafar meðal annars af því að það er nánast ekkert svigrúm sem við höfum.“
Ólafur segir mikinn niðurskurð hafa gert það að verkum að spítalinn eigi erfitt með að mæta óvæntum áföllum eins og því sem gengur yfir núna. Til að mynda sé nýting á rúmum og skurðstofum nánast hundrað prósent nú þegar.
Ólafur fundaði ásamt framkvæmdastjórn spítalans í dag, þar sem staðan var metin og næstu skref ákvörðuð. Hann segir verkfallsaðgerðirnar hafa í för með sér mikla röskun á biðlistum, en sjúklingarnir sem missa sinn tíma, hvort sem það er tími í aðgerð eða annað, munu fá annan tíma.
„Við endurröðun á biðlista er lögð áhersla á læknisfræðileg vandamál hvers og eins sjúklings, en það segir sig sjálft að slík vinna er ekki ákjósanleg staða,“ segir hann.
Fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir munu standa yfir fram í miðjan desember, náist ekki samningar fyrir þann tíma. Ólafur segist hafa þungar áhyggjur af framhaldinu, en segist vonast til þess að óvissunni fari að ljúka.
„Við óskum þess meira en nokkurs annars að deiluaðilar komist að samkomulagi sem allra fyrst,“ segir hann.
Boðað hefur verið til kjarafundar á morgun klukkan 16.