Nýr umræðuþáttur á RÚV

Bogi Ágústsson.
Bogi Ágústsson.

Hringborðið er nýr umræðuþáttur sem senn hefur göngu sína á RÚV þar sem þjóðmálaumræðan verður skoðuð í stærra samhengi með hliðsjón af samhengi sögunnar og reynslunnar. Umsjónarmenn þáttarins verður Bogi Ágústsson fréttamaður og fyrrverandi fréttastjóri, Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins og Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri og fyrrverandi þingmaður og leikhússtjóri Borgarleikhússins.  Þau hafa öll víðtæka og áralanga reynslu af þátttöku og umræðu um þjóðmál í gegnum frétta- og blaðamennsku og stjórnmál. 

Hringborðið verður mánaðarlega á dagskrá RÚV, fyrsta mánudag hvers mánaðar á eftir tíu fréttum, og munu umsjónarmenn kalla til sín viðmælendur sem koma til að eiga það sameiginlegt að búa yfir yfirgripsmikilli reynslu og þekkingu og hafa þar af leiðandi vel ígrundaða og sterka innsýn í þau málefni sem hvað hæst brenna á þjóðinni hverju sinni eða þarfnast frekari skoðunar.

Þjóðmálin í stærra samhengi

„Hringborðið á að vera uppbyggilegur umræðuþáttur þar sem fólk með víðtæka reynslu og þekkingu á íslensku samfélagi ræðir málefni líðandi stundar,“ er haft eftir Magnúsi Geir Þórðarsyni útvarpsstjóra í fréttatilkynningu. „Umsjónarmennirnir eiga það sameiginlegt að hafa mikla yfirsýn og muna tímana tvenna. Við vonumst til að þátturinn muni setja málefni dagsins í dag í stærra samhengi og skauta hjá því argaþrasi sem einkennir umræðuna oft og tíðum. Okkur hefur stundum þótt skorta nokkuð á að raddir hinna reynslumeiri heyrist nægjanlega oft í íslenskum fjölmiðlum en við teljum að með þessu séum við að vissu leyti að bæta úr því. Ég á því von á litríkum og uppbyggilegum umræðuþætti þar sem tekist verður á af miklu krafti um þau málefni sem skipta þjóðina öllu máli, í dag og ekki síst til framtíðar litið.“ 

„Í þættinum leiðum við saman þrjá umsjónarmen sem sannarlega uppfylla þessar kröfur. Afar reynslumikið fólk sem á það sameiginlegt að hafa betri og dýpri skilning á íslenskum þjóðmálum en flestir aðrir og munu þau með aðstoð vel valdra viðmælenda sem flestir hverjir deila þessari reynslu – en eru ekkert endilega sammála þeim um hvernig túlka beri söguna og hvaða lærdóm við getum dregið af henni,“ segir Skarphéðinn Guðmundsson dagskrárstjóri RÚV.

Fyrsti þáttur verður á dagskrá mánudaginn 8. desember kl. 22.20.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert