Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekki eiga von á því að ákvörðun um arftaka Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra verði tekin á þingflokksfundi sem hefst kl. 13.
Í samtali við blaðamann mbl.is sagðist Ragnheiður ekki eiga von á því að nýr ráðherra yrði kynntur til sögunnar á fundinum eða að ákvörðun um hver það verði muni liggja fyrir að fundi loknum.
Ragnheiður sagði að á fundinum myndi Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins ræða við þingmenn og kynna sín sjónarmið.
Frétt mbl.is: Arftakinn valinn kl. 13?