Lögreglustjórinn á Vestfjörðum telur aðgerðir sinna manna hafa verið réttmætar miðað við aðstæður en harmar meiðsli manns sem handtekinn var aðfaranótt 17. nóvember síðastliðinn. Þá vonar lögreglustjórinn að hann nái sér að fullu.
Sagt var fyrst frá málinu á mbl.is á fimmtudaginn. Kom þar fram að lögreglan á Ísafirði hefði orðið að grípa til vopna vegna manns sem var vopnaður hnífi í húsi í bænum. Vitnað var í heimildarmann mbl.is á Ísafirði sem sagði að lögreglumenn hefðu gert tilraun til þess að yfirbuga manninn með kylfum og mace-brúsum en orðið frá að hverfa. Þeir náðu þá í byssu í lögreglubílinn í samráði við lögreglustöðina. Manninum var síðan tilkynnt með gjallarhorni að lögreglan hefði vopnast og kom hann í kjölfarið út úr húsinu óvopnaður og var handtekinn.
Lögreglan sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem farið er yfir helstu atriði málsins:
Þá segir lögreglan að ekki standi til að reka málið í fjölmiðlum en „lögreglustjórinn á Vestfjörðum telur aðgerðir hafa verið réttmætar miðað við aðstæður en harmar meiðsli mannsins og vonar að hann nái sér að fullu. Hegðun hans var hins vegar óboðleg, stórháskaleg og hættuleg lífi og heilsu lögreglumanna á vettvangi og eins hans eigin lífi. Lögreglan biður fólk að sýna málinu skilning og velta fyrir sér alvarleika þess. Hugleiða varnir lögreglumanna við að verjast árás hnífamanns eða allra þeirra sem þurfa að standa í þeim sporum. “
Rannsókn málsins er á lokastigi og verður það síðan sent ríkissaksóknara til meðferðar.
Fréttir mbl.is um málið: