Arkadiusz Pawel Maciag maðurinn sem leitað hefur verið að í nótt og í morgun er fundinn.
Hann fannst nærri Reykjanesbæ, fyrir utan girðinguna við flugvöllinn. Sjúkraflutningamenn eru nú á leið á vettvang til að kanna ástand mannsins.
Alls tóku 111 björgunarsveitarmenn þátt í leitinni.
Ekkert samband hafði náðst við manninn frá kl. 3 í nótt. Gögn úr farsíma hans sýndu að hann væri á stöðugri hreyfingu. Aðstæður voru erfiðar til leitar, rigning, rok og myrkur.
Símasamband náðist af og til við manninn en hann gat ekki gefið greinargóðar upplýsingar um staðsetningu sína.
Í frétt frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg kom fram að mannsins hafi verið saknað frá því síðdegis í gær. Pawel er útlendingur og í heimsókn hjá ættingja hér á landi. Sá fór að óttast um hann og kom á lögreglustöðina í Keflavík og óskaði eftir aðstoð.
Uppfært kl. 12.54
Ekki fást nánari upplýsingar um líðan mannsins.